Fotbolti.net
13.05.11 - 14:04
Magnús Már Einarsson

Tomi Ameobi í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Tomi Ameobi (í miðjunni) í leik með Leeds gegn Portsmouth árið 2007.

Tomi Ameobi (í miðjunni) í leik með Leeds gegn Portsmouth árið 2007.

Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Tomi Ameobi hefur gengið til liðs við BÍ/Bolungarvík en hann hefur verið á reynslu hjá liðinu undanfarna daga.
Tomi Ameobi er yngri bróðir Shola Ameobi framherja Newcastle United en hann á ættir að rekja til Nígeríu.

Tomi er 22 ára gamall en hann var síðast á mála hjá utandeildarliðinu Whitley Bay. Tomi var í unglingaliði Newcastle og síðar unglingaliði Leeds.

Hann lék meðal annars leik með aðalliði Leeds í enska deildabikarnum gegn Portsmouth árið 2007 áður en hann fór til Scunthorpe á láni þar sem hann lék níu leiki í Championship deildinni.

Tomi hefur síðan þá leikið með Doncaster, Grimsby og Mansfield í ensku neðri deildunum.

Hann er kominn með leikheimild með BÍ/Bolungarvík og getur því leikið með liðinu gegn ÍR í fyrstu umferðinni í fyrstu deildinni á morgun.

Þá hefur Bí/Bolungarvík einnig fengið markvörðinn unga Bjarka Pétursson frá KH en hann er ennþá gjaldgengur í öðrum flokki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.