13.05.11 - 14:31
Magnús Már Einarsson
Björn Jónsson í KR (Staðfest)

Mynd: Hugi

Mynd: Hugi
Björn Jónsson hefur gengið til liðs við KR en hann hefur gert samning við félagið út þetta tímabil. Rúnar Kristinsson þjálfari KR staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.
Björn hefur leikið með Heerenveen í Hollandi frá 2005 en hann losnaði þaðan á dögunum og æfði í kjölfarið með FH.
Þessi 21 árs gamli leikmaður er uppalinn hjá ÍA og hann var í yngri flokkum Skagamanna áður en hann fór til Hollands.
Björn fór í kviðslitsaðgerð fyrir rúmum mánuði en hann er núna kominn af stað á nýjan leik.
Í öðrum fréttum af KR má nefna að Ingólfur Sigurðsson gæti yfirgefið herbúðir félagsins áður en félagaskiptaglugginn á Íslandi lokar á sunnudag.
Nokkur félög hafa sýnt Ingólfi áhuga en að sögn Rúnars eru mál hans í höndum stjórnar KR.