13.05.11 - 15:14
Magnús Már Einarsson
Ben Ryan Long í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Ben Ryan Long hefur gengið til liðs við Keflvíkinga en hann fær leikheimild með liðinu á morgun.
Ben þekkir vel til á Suðurnesjunum en hann spilaði með Njarðvíkingum í fyrra og Grindavík sumarið 2009.
Þessi 22 ára gamli Englendingur getur leikið allar stöður á miðunni sem og í bakverði.
Hann hefur æft með Keflavík í vor auk þess sem hann æfði um tíma með Haukum.
Í fyrra lék Ben fjórtán leiki í fyrstu deildinni og tvo leiki í VISA-bikarnum með Njarðvíkingum.
Ben gæti leikið sinn fyrsta leik með Keflavík þegar liðið mætir hans gömlu félögum í Grindavík á mánudagskvöld.