Fotbolti.net
13.05.11 - 15:21
Magnús Már Einarsson

Benis Krasniqi, Grétar Atli og Rúnar í Hauka (Staðfest)

Grétar Atli (til vinstri) er kominn aftur til Hauka.

Grétar Atli (til vinstri) er kominn aftur til Hauka.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Haukar hafa fengið Benis Krasniqi, Grétar Atla Grétarsson og Rúnar Guðbjartsson til liðs við sig.
Benis kemur til Hauka frá Reyni í Sandgerði þar sem hann skoraði eitt mark í sextán leikjum í fyrra.

Þessi 29 ára gamli varnarmaður gekk til liðs við Hauka árið 2008 en stoppaði stutt við áður en hann fór í KS/Leiftur.

Grétar Atli þekkir einnig til hjá Haukum því hann lék níu leiki með liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra eftir að hafa komið á láni frá Stjörnunni.

Grétar, sem getur leikið í bakverðinum og á kanti, kemur einnig á láni frá Stjörnunni núna.

Rúnar er síðan ungur miðjumaður sem kemur á láni frá Þrótti þar sem hann er uppalinn.

Haukar mæta Víkingi frá Ólafsvík í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar á morgun en þeir eru allir komnir með leikheimild fyrir þann leik.

Haukar hafa einnig lánað nokkra leikmenn í varalið sitt Markaregn í dag en þar á meðal er framherjinn Garðar Ingvar Geirsson sem skoraði tíu mörk í fyrstu deildinni árið 2009.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.