13.05.11 - 17:20
Brynjar Ingi Erluson
Víkingur Pálmason lánaður frá Þór í KF (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Knattspyrnufélag Fjallabyggðar sem leikur í annarri deild hefur fengið varnarmanninn Víking Pálmason frá Þór á láni út tímabilið.
Víkingur, sem er 19 ára gamall á að baki 20 leiki með Þór í deildarkeppni og þá þrjá leiki í Visa-bikarnum, en hann var lykilmaður í liðinu sumarið 2009 þar sem hann lék 17 deildarleiki.
Hann á þá fimm leiki að baki með U17 ára landsliði Íslands, en hann er kominn með leikheimild hjá KF og getur því spilað í fyrstu umferð gegn Aftureldingu á sunnudag.
Lárus Orri Sigurðsson þjálfar KF, en hann hefur styrkt hópinn vel fyrir komandi tímabil þar sem liðinu er spáð 6. sæti í annarri deildinni hér á Fótbolta.net.