13.06.06 - 11:32
Guðmundur Dagur Ólafsson
Poulsen til Sevilla (Staðfest)

Poulsen er hér í baráttu við Nelson Valdez leikmann Werder Bremen

Mynd: Getty Images

Poulsen er hér í baráttu við Nelson Valdez leikmann Werder Bremen

Mynd: Getty Images
Daninn Christian Poulsen hefur skrifað undir 3 ára samning við Sevilla, sem unnu UEFA bikarinn í vor.
Hinn 26 ára gamli Poulsen kemur frá þýska félaginu Schalke en hann gekk til liðs við þá árið 2002. Ásamt því að vera að spila hjá Schalke hefur Poulsen verið lykilmaður í danska landsliðinu undanfarinn ár.
Sevilla sem enduðu tímabilið á Spáni í 5.sæti slógu einmitt Schalke út í undanúrslitum UEFA bikarsins núna í vor. En hefur ekkert verið gefið upp hve mikið Sevilla þarf að borga þýska félaginu fyrir leikmaninn.