Fotbolti.net
13.06.07 - 16:04
Magnús Már Einarsson

Þorvaldur Makan í KA (Staðfest)

Þorvaldur Makan í KA (Staðfest)
Canon

Mynd: KA-Sport.is

Fyrstudeildarlið KA hefur fengið Þorvald Makan Sigurbjörnsson en hann lék síðast með liðinu frá 1999-2003. Síðastliðið sumar lék Þorvaldur með Val þar sem hann kom við sögu í sex leikjum í Landsbankadeildinni.
,,Ég veit ekkert hvernig formi ég er í," sagði Þorvaldur og hló þegar Fótbolti.net talaði við hann í dag. ,,Það er aðallega málið að líkaminn haldi, þá kemur hitt," bætti Þorvaldur við.

Þorvaldur hefur skorað fjögur mörk í 30 leikjum með KA í efstu deild hér á landi en hann hefur einnig leikið í Svíþjóð. Þá hefur hann einnig leikið með Leiftri og Fram hér á landi en hann þurfti að hætta hjá síðarnefnda félaginu sumarið 2004 og taka sér frí frá fótbolta í tvö ár vegna veikinda.

Þorvaldur mun ekki flytja á Akureyri en hann mun æfa sjálfur á Höfuðborgarsvæðinu þar sem hann býr.

Hann hefur þegar fengið leikheimild með KA og er hann því löglegur með liðinu gegn ÍBV í sjöttu umferð fyrstu deildarinnar næstkomandi laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.