13.06.07 - 17:07
Arnar Geir Halldórsson
David Suazo til Inter (Staðfest)

Suazo í leik gegn Fiorentina

Mynd: Getty Images

Suazo í leik gegn Fiorentina

Mynd: Getty Images
Ítölsku meistararnir í Inter Milan hafa fest kaup á framherjanum David Suazo frá Cagliari.
Suazo sem kemur frá Hondúras hefur átt góðu gengi að fagna hjá Cagliari undanfarið og var einn af eftirsóttustu leikmönnunum á Ítalíu.
Leikmaðurinn er 27 ára en hann var valinn besti erlendi leikmaður ársins 2006 á Ítalíu ásamt snillingnum Kaka. Á þarsíðasta tímabili skoraði kappinn 22 mörk fyrir Cagliari og bætti þar með félagssmet Gigi Riva í markaskorun.
Kaupverðið er ekki gefið upp en forseti Cagliari segist sáttur með viðskiptin við meistarana. ,,Inter hafa gert frábær kaup. Suazo mun verða byrjunarliðsmaður hjá liðinu. Hann er frábær leikmaður og góður atvinnumaður."

Heimild: Reuters