Fotbolti.net
13.06.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Kristjánsson í Breiðablik að nýju (Staðfest)

Guðmundur í leik með Haukum gegn Selfoss fyrr í mánuðinum.

Guðmundur í leik með Haukum gegn Selfoss fyrr í mánuðinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Guðmundur Kristjánsson er genginn í raðir Breiðabliks að nýju eftir að hafa verið á láni hjá 1. deildarliði Hauka það sem af er tímabilinu.

Hann lék alla sex leiki Hauka í 1. deildinni til þessa og skoraði í þeim eitt mark. Hann fær leikheimild með Breiðablik í dag og verður því löglegur í leiknum gegn FH á mánudagskvöld.
Guðmundur er 19 ára gamall miðavallarleikmaður sem hefur leikið með U17, U18 og U19 ára landsliðum Íslands, nú síðast með U19 ára liðinu gegn Búlgörum í byrjun þessa mánaðar.

Hann lék tvo leiki með Breiðablik í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð en hafði ekki átt fast sæti í liði Breiðabliks á undirbúningstímabilinu og var svo lánaður til Hauka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.