Fotbolti.net
13.06.08 - 13:49
Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir Ottesen til Sönderjyske (Staðfest)

Sölvi Geir í landsleik með Íslandi.

Sölvi Geir í landsleik með Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Miðvörðurinn Sölvi Geir Ottesen er genginn í raðir danska félagsins Sönderjyske frá Djurgården í Svíþjóð þar sem hann hefur leikið undanfarin ár.
Þetta var staðfest á vefsíðu Guðlaugs Tómasarsonar umboðsmanns Sölva, nú í dag en þar kemur fram að hann hafi gert þriggja ára samning við danska félagið sem eru nýliðar í efstu deild þar í landi.

,,Okkur finnst Sölvi vera rétti leikmaðurinn fyrir okkur," er haft eftir Jacob Gragersen íþróttastjóra Sönderjyske á vefsíðunni.

,,Hann er vinnusamur leikmaður með rétt hugarfar sem mun berjast til síðasta blóðdropa fyrir liðið. Hann er líka gífurlea sterkur á alla kanta og í föstum leikatriðum er hann sterkur bæði sóknarlega og varnarlega."

Heimild: ScandicManagers.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.