13.06.08 - 16:14
Magnús Már Einarsson
Aron Einar til Coventry (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Miðjumaðurinn efnilegi Aron Einar Gunnarsson gekk í dag til liðs við Coventry en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Þetta staðfesti Aron Einar við Fótbolta.net nú síðdegis.
Coventry, sem leikur í ensku Championship deildinni, hafði áður náð samkomulagi við hollenska félagið AZ Alkmaar um kaup á Aroni.
Aron Einar, sem er 19 ára, lék með Þór í yngri flokkunum en hann gekk til liðs við AZ Alkmaar sumarið 2006.
Þessi efnilegi leikmaður hefur á þessu ári tryggt sér sæti í íslenska landsliðinu og hefur hann verið í byrjunarliði í undanförnum þremur landsleikjum, síðast gegn Wales.
Coventry rétt bjargaði sér frá falli í ensku Championship deildinni á síðustu leiktíð en stjóri liðsins er Chris Coleman sem stýrði Fulham og Real Sociedad á sínum tíma.