Fotbolti.net
13.06.11 - 09:42
Hafliði Breiðfjörð

Steve McClaren tekur við Nottingham Forest (Staðfest)

Steve McClaren er kominn í enska boltann að nýju.

Steve McClaren er kominn í enska boltann að nýju.

Canon

Mynd: Getty Images

Nottingham Forest hefur gengið frá ráðningu á Steve McClaren sem næsta knattspyrnustjóra félagsins en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við þá og tekur við starfiu af Billy Davies sem var rekinn í gær.
McClaren stýrði síðast Middlesbrough á Englandi áður en hann tók við enska landsliðinu en hann var síðast hjá Wolfsburg í Þýskalandi þaðan sem hann var rekinn í febrúar.

Hann þjálfaði enska landsliðið í 16 mánuði frá ágúst 2006 en fór þaðan til Twente í Hollandi þar sem hann vann deildina árið 2010.

Billy Davies hafði verið rekinn í gær þar sem félaginu tókst ekki að vinna sér sæti í ensku úrvalsdeildinni tvö ár í röð undir hans stjórn.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.