13.06.11 - 13:27
Magnús Már Einarsson
Ívar Ingimarsson til Ipswich (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Ívar Ingimarsson hefur gengið í raðir Ipswich Town en hann hefur samþykkt eins árs samning við félagið.
Ívar, sem er 33 ára, yfirgaf Reading á dögunum en nú er ljóst að hann mun leika áfram í Championship deildinni með Ipswich.

,,Ég spjallaði við Ívar þegar við vorum báðir á Spáni og þetta er klárt, hann verður með okkur frá fyrsta degi á undirbúningstímabilinu,\" sagði Paul Jewell stjóri Ipswich.
,,Hann er reyndur leikmaður sem veit hvað Championship deildin snýst um.\"
,,Hann veit hvað þarf til að ná árangri og ég er ánægður með að hann verði með okkur á næsta tímabili.\"
Ívar lék samtals 280 leiki með Reading á átta ára ferli sínum hjá félaginu en hann hefur einnig leikið með Brentford og Wolves á Englandi.

Heimild: Heimasíða Ipswich