Búið er að draga í riðla fyrir fyrstu umferð undankeppni EM 2025 hjá U17 og U19 ára landsliðum kvenna.
Ísland var í þriðja styrkleikaflokki í A-deild í drættinum í báðum aldursflokkum.
U19 er í erfiðum riðli ásamt Spáni, Belgíu og Norður-Írlandi en staðfesting á eftir að berast á því hvenær og hvar hann verður spilaður.
U17 er í riðli ásamt Póllandi, Skotlandi og einnig Norður-Írlandi og á staðfesting eftir að berast hvar og hvenær riðillinn verður leikinn.
Neðsta sæti hvers riðils fellur niður í B-deild fyrir seinni umferð undankeppninnar.
Athugasemdir