13.07.07 - 13:25
Arnar Geir Halldórsson
Rolando Bianchi til Manchester City (Staðfest)

Bianchi í leik með Reggina

Mynd: Getty Images

Bianchi í leik með Reggina

Mynd: Getty Images
Rolando Bianchi er genginn til liðs við Manchester City frá Reggina á Ítalíu.
Bianchi sem er ítalskur sóknarmaður gekkst undir læknisskoðun hjá félaginu í dag og er kaupverðið sagt vera um 8,8 milljónir punda.
Þetta eru fyrstu kaup Sven-Göran Eriksson fyrir City en Bianchi er 24 ára og á að baki nokkra U-21 árs landsleiki með Ítölum.
,,Hann skoraði tæp 20 mörk í Serie A sem er mikið í jafn erfiðri deild. Hann er ungur og það er mjög mikilvægt því hann á glæsta framtíð. Hann er góður fótboltamaður og mikill markaskorari, það er akkúrat það sem okkur vantaði," sagði fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga.
Bianchi gæti spilað æfingaleik með liðinu strax á morgun gegn Doncaster en hann var í skýjunum með félagsskiptin.
,,Herra Eriksson hringdi í mig og sagði mér að hann vildi fá mig. Hann sagði ,,Komdu og spilaðu fyrir 50 þúsund manns í hverri viku og svo stefnum við á Evrópukeppnir." Þarna sannfærðist ég," sagði þessi sterki sóknarmaður.
City ollu miklum vonbrigðum á seinasta tímabili, enduðu í 14.sæti og áttu í miklum erfiðleikum með að skora en þeir skoruðu ekki mark á heimavelli frá 1.janúar og til loka tímabilsins. Þeir hafa misst tvo lykilmenn, þá Sylvain Distin og Joey Barton en talið er að Eriksson fái vænar fúlgur fjár til að eyða.

Heimild: BBC