13.07.07 - 17:44
Hörður Snævar Jónsson
Montella til Sampdoria (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Sampdoria á Ítalíu hafa fengið góðan liðstyrk. Vincenzo Montella hefur gengið til liðs við félagið. Montella er ekki ókunnugur Sampdoria því hann lék með liðinu fyrir átta árum síðan.
Montella sem er 33 ára gamall framherji hefur verið hjá Roma frá 1999 en hann var lánaður til Fulham á Englandi í janúar.
Þessi skæði framherji hefur skorað 137 mörk í Seriu A. Hann kostaði Roma á sínum tíma 25 milljónir evra. Montella sem er frá Ítalíu hefur leikið 20 leiki fyrir landsliðið.
Þessi skæði framherji hefur skorað 137 mörk í Seriu A. Hann kostaði Roma á sínum tíma 25 milljónir evra. Montella sem er frá Ítalíu hefur leikið 20 leiki fyrir landsliðið.
Heimild: Uefa
