13.07.09 - 16:04
Magnús Már Einarsson
Enzo Maresca til Olympiakos (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Olympiakos frá Grikklandi hefur fengið Enzo Maresca til liðs við sig frá Sevilla en þessi ítalski framherji hefur skrifað undir þriggja ára samning við grísku meistarana
,,Það er stór áskorun fyrir mig að leika með Olympiakos. Félagið hefur orðið grískur meistari tólf sinnum á síðustu þrettán árum,\" sagði Maresca.
,,Ég var með tilboð frá Ítalíu og Englandi en ég ákvað að skrifa undir hjá Olympiakost því að þeir sýndu hversu mikið þeir vildu fá mig.\"
Maresca lék áður með Juventus, Bologna, Piacenza og Fiorentina í heimalandinu en hann var einnig á mála hjá West Bromwich Albion á sínum tíma.

Heimild: Sky