13.07.09 - 17:09
Magnús Már Einarsson
Paulo da Silva til Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sunderland hefur fengið Paulo da Silva, fyrirliða paragvæska landsliðsins, til liðs við sig.
Þessi 29 ára gamli varnarmaður hefur leikið meira en 50 leiki með Paragvæ en hann leikur vanalega í stöðu miðvarðar.
Da Silva kemur til Sunderland frá mexíkóska liðinu Toluca þar sem hann var fyrirliði.
,,Ég er ánægður með að hafa fengið leikmann með reynslu eins og Paulo,\" sagði Steve Bruce stjóri Sunderland,
,,Hann er fyrirliði þjóðar sinnar og hefur spilað í efstu deildum Suður-Ameríku þannig að hann mun koma með leiðtogahæfileika í lið okkar.\"

Heimild: BBC