13.07.11 - 11:00
Brynjar Ingi Erluson
Paul Konchesky til Leicester City (Staðfest)

Paul Konchesky

Mynd: Getty Images

Paul Konchesky

Mynd: Getty Images
Leicester City sem leikur í næstefstu deild á Englandi hefur fengið enska vinstri bakvörðinn Paul Konchesky frá Liverpool.
Konchesky, sem er 30 ára gamall gerði þriggja ára samning við Leicester, en hann hafði ekki verið í plönum Kenny Dalglish knattspyrnustjóra Liverpool.
Hann eyddi seinni hluta síðasta tímabils á láni hjá Nottingham Forest, en það var Roy Hodgson sem fékk hann til Liverpool síðasta sumar áður en honum var sagt upp störfum.
Hann gengur því nú til liðs við Sven Göran Eriksson og félaga í Leicester en liðið heldur í æfingaferð til Svíþjóðar á næstu dögum.
Konchesky spilaði í heildina 18 leiki með Liverpool, en áður spilaði hann með Fulham, West Ham, Tottenham og Charlton.

Heimild: Sky