Fotbolti.net
13.07.11 - 10:52
Magnús Már Einarsson

Jay Bothroyd til QPR (Staðfest)

Jay Bothroyd til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Queens Park Rangers hefur samið við framherjann Jay Bothroyd en hann kemur frítt til félagsins frá Cardiff.

Þessi 28 ára gamli leikmaður ákvað á dögunum að gera ekki nýjan samning við Cardiff og hann hefur núna skrifað undir þriggja ára samning við nýliða QPR.
,,Ég tel að félagið sé á leið í rétta átt og það hefur mikinn metnað,\" sagði Bothroyd.

Bothroyd lék með QPR á sínum yngri árum áður en hann fór til Arsenal. Síðan þá hefur hann leikið með Coventry, Perugia, Blackburn, Charlton, Wolves, Stoke og Cardiff.

Koma Bothroyd til QPR þýðir að Heiðar Helguson mun fá meiri samkeppni um stöðu í byrjunarliðinu og sú samkeppni gæti orðið ennþá meira á næstunni ef DJ Campbell kemur til félagsins frá Blackpool.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.