Fotbolti.net
13.07.11 - 13:10
Magnús Már Einarsson

Roger Johnson til Wolves (Staðfest)

Roger Johnson til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur keypt varnarmanninn Roger Johnson frá Birmingham en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Johnson, sem er 28 ára, skrifaði undir fjögurra ára samning við Wolves eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá félaginu.

Johnson hjálpaði Birmingham að verða enskur deildabikarmeistari á síðasta tímabili en hann náði ekki að hjálpa liðinu að bjarga sér frá falli.

,,Þetta var erfið ákvörðun en ég vildi vera áfram úrvalsdeildinni,\" sagði Johnson eftir að hafa skrifað undir hjá Wolves.

,,Ég er viss um að einhverjir verða vonsviknir með þessa ákvörðun en ég er 28 ára og vil vera í úrvalsdeildinni eins lengi og ég get.\"

Johnson er þriðji leikmaðurinn sem Wolves krækir í núna í sumar en áður höfðu Jamie O\'Hara og Dorus De Vries komið til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.