13.07.11 - 11:36
Hörður Snævar Jónsson
Elfar Freyr Helgason til AEK (Staðfest)

Elfar Freyr í búningi AEK.

Mynd: Aðsend

Elfar Freyr í búningi AEK.

Mynd: Aðsend
Elfar Freyr Helgason er genginn í raðir AEK frá Breiðablik og skrifaði hann undir þriggja ára samning.
,,Ég er mjög ánægður með þessi skipti og mér finnst heiður að hafa skrifað undir hjá AEK,\" sagði Elfar við heimasíður félagsins.
,,Þetta er stór klúbbur í Evrópu með góða aðstöðu, góða þjálfara og marga frábæra leikmenn.\"
,,Ég hef unnið hart að því að komast til Grikklands og ég get lofað félaginu og stuðningsmönnum að ég mun gera mitt besta á meðan ég klæðist treyju félagsins.\"
Arnar Grétarsson, fyrrum leikmaður Breiðabliks, er yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK.
Elfar Freyr, sem er einn besti miðvörður Pepsi-deildarinnar, var til reynslu hjá AEK síðasta haust og stóð sig vel.
Hann var í leikmannahópi U-21 árs landsliðsins á EM en kom ekki við sögu í því móti.