Fotbolti.net
13.07.11 - 11:35
Magnús Már Einarsson

Hallgrímur Jónasson til SønderjyskE á láni (Staðfest)

Hallgrímur Jónasson til SønderjyskE á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Jónasson, leikmaður GAIS í Svíþjóð, er farinn til danska félagsins SønderjyskE á láni en þetta staðfesti Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður leikmannsins í samtali við Fótbolta.net.

Lánssamningurinn gildir til áramóta og því mun Hallgrímur að minnsta kosti leika fyrri hluta tímabilsins í Danmörku með SønderjyskE.
Hallgrímur hefur ekki átt fast sæti í liði GAIS á þessu tímabili en hann hefur einungis leikið fjóra leiki í sumar eftir að hafa leikið nánast alla leik liðsins í fyrra.

Hallgrímur mun væntanlega spila sinn fyrsta leik með SønderjyskE þegar liðið mætir FC Kaupmannahöfn í Íslendingaslag í fyrstu umferð dönsku deildarinnar á sunnudag.

Arnar Darri Pétursson og Eyjólfur Héðinsson eru báðir á mála hjá SønderjyskE en Ólafur Ingi Skúlason fór frá liðinu til SV Zulte Waragem í Belgíu á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.