Fotbolti.net
13.07.11 - 15:48
Jóhann Óli Eiðsson

Kieron Dyer til QPR (Staðfest)

Kieron Dyer til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kieron Dyer hefur skrifað undir samning við nýliða QPR í ensku úrvalsdeildinni. Samningurinn er til eins árs.
Dyer, 32 ára, kemur til liðsins frá West Ham á frjálsri sölu en samningur hans rann út fyrir skemmstu. Hann kom lék fáa leiki með West Ham vegna meiðsla en þangað hafði hann komið frá Newcastle. Hjá Newcastle lenti hann einmitt í slag við þáverandi liðsfélaga sinn, Lee Boywer, í miðjum leik gegn Aston Villa og uppskar þriggja leikja bann.

,,Ég er afar kátur. Liðið er með háleit markmið og ég vil vera partur af því sem koma skal. Ég settist niður með Neil Warnock og ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um áður en ég ákvað að koma hingað\" sagði Dyer við heimasíðu síns nýja félags.

,,Þegar jafngóður leikmaður og Dyer er á lausu þá er erfitt að vera áhugalaus. Hann kom og æfði með okkur og heillaði mig strax, virtist í fínu formi og til í slaginn,\" lét Neil Warnock, stjóri QPR, hafa eftir sér.

,,Hann hefur átt erfitt upp á síðkastið og vill sýna úr hverju hann er gerður. Ég er viss um að hann mun reynast okkur vel.\"

Hjá QPR hittir Dyer fyrir íslenska landsliðsframherjann Heiðar Helguson.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.