Fotbolti.net
13.07.11 - 18:19
Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Einarsson í Víking (Staðfest)

Gunnar Einarsson er farinn til Víkings frá Leikni.

Gunnar Einarsson er farinn til Víkings frá Leikni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Gunnar Einarsson er genginn til liðs við Pepsi-deildarlið Víkings en þetta var staðfest í fréttatilkynningu frá félaginu í kvöld.
Gunnar hafði hætt sem spilandi aðstoðarþjálfari Leiknis um helgina eftir að Sigursteini Gíslasyni og Garðari Gunnari Ásgeirssyni var sagt upp störfum hjá félaginu.

Nokkur félög sýndu honum áhuga eftir það en hann valdi að fara í Pepsi-deildina að nýju og ganga til liðs við Víking.

Gunnar Einarsson er 35 ára gamall varnarmaður sem hóf feril sinn hjá Val á tíunda áratug síðustu aldar áður en hann fór í atvinnumennsku og lék með Brentford á Englandi, og liðum Roda, Venlo og MVV í Hollandi.

Hann kom svo heim að nýju árið 2000 og lék með KR í sjö tímabil áður en hann sneri aftur til Vals þar sem hann var í tvö ár og varð Íslandsmeistari með liðinu fyrra árið, 2007.

Víkingur hefur þegar fengið Magnús Pál Gunnarsson til liðs við sig frá Þýskalandi sem fær leikheimild þegar félagaskiptaglugginn opnar á föstudag eins og Gunnar. Þeir eru því báðir klárir í slaginn í leikinn gegn Fram í Pepsi-deildinni á sunnudag.

Þá hafa þeir Kristinn Hafliðason og Stefán Örn Arnarsson æft með liðinu upp á síðkastið en óljóst hvort samið verði við þá.

Tilkynning Víkings
Gunnar Einarsson skrifaði nú síðdegis undir samning við knattspyrnudeild Víkings.

Gunnar á að baki um 400 meistaraflokksleiki á Íslandi með KR, Val og Leikni.
Þá spilaði Gunnar með Roda í Hollandi og Brentford í Englandi.

Gunnar á að baki bæði leiki með A landsliði og unglingalandsliðum Íslands.

Knattspyrnudeild Víkings bindur miklar vonir við komu Gunnars og er viss um að hin mikla reynsla hans muni nýtast félaginu í hinni hörðu keppni sem er framundan í Pepsi deild karla.

Knattspyrnudeild Víkings
Víkingar hafa fengið liðsstyrk.

Víkingar hafa fengið liðsstyrk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.