Fotbolti.net
13.08.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Freddy Adu til Philadelphia Union (Staðfest)

Freddy Adu til Philadelphia Union (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Freddy Adu hefur gengið til liðs við Philadelphia Union í MLS deildinni í Bandaríkjunum en hann kemur til félagsins frá Benfica í Portúgal.

Adu, sem er 22 ára, var undrabarn á sínum tíma en hann hefur ekki náð ferli sínum á flug undanfarin ár.
Adu var á mála hjá D. C. United og Real Salt Lake áður en hann gekk í raðir Benfica árið 2007.

Síðan þá hefur Adu farið til Frakklands, Portúgals, Grikklands og Tyrklands á láni en hvergi náð að festa sig í sessi.

Adu komst hins vegar aftur í bandaríska landsliðið í sumar og sýndi góða takta á Gullmótinu sem fór fram Bandaríkjunum.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.