Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 13. ágúst 2020 09:30
Magnús Már Einarsson
Stjarnan fær ítalskan framherja (Staðfest)
Stjarnan fagnar marki í sumar.
Stjarnan fagnar marki í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Ítalski framherjinn Angela Pia Caloia hefur gengið til liðs við Stjörnuna fyrir síðari hluta tímabilsins í Pepsi Max-deild kvenna.

Angela er 18 ára gömul en hún hefur spilað með háskólaliðinu í Harvard háskólanum í Bandaríkjunum undanfarin ár.

Angela á einnig að baki leiki með U19 ára landsliði Ítalíu en hún er komin með leikheimild með Stjörnunni.

Stjarnan er í 8. sæti í Pepsi Max-deild kvenna en liðin í 7-9. sæti deildarinnar eru öll jöfn að stigum.

Næsti leikur Stjörnunnar er gegn Þór/KA á heimavelli á sunnudaginn og þar gæti Angela spilað sinn fyrsta leik.

Draumaliðsdeild 50skills
Angela er mætt í Draumaliðsdeild 50skills. Kemst hún í þitt lið?
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner