13.09.10 - 17:00
Hörður Snævar Jónsson
Kristján Guðmundsson rekinn frá HB (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Guðmundsson hefur verið rekinn sem þjálfari HB. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.
Kristján tók við HB fyrir þessa leiktíð og er liðið í bullandi séns á að vinna deildina.
Þetta kemur fremur á óvart enda liðið í öðru sæti þegar sex leikir eru eftir og tveimur stigum frá toppliðinu.
Liðið tapaði fyrir FC Suðuroy í gær 4-1 og var það til þess að Kristján var rekinn.
Hann tók við liðinu fyrir þessa leiktíð eftir að hafa hætt með Keflavík eftir síðasta tímabil.
Ítarlega er rætt við Kristján í viðtali hér á Fótbolta.net innan skamms.