13.10.07 - 13:25
Magnús Már Einarsson
Jesper Tollefsen tekur við Víkingi (Staðfest)

Mynd: Víkingur

Mynd: Víkingur
Danski þjálfarinn Jesper Tollefsen hefur tekið við þjálfun Víkings R. en hann hefur gert tveggja ára samning við félagið. Jesper mun einnig starfa sem yfirmaður þjálfunarmála hjá félaginu og koma að þjálfun yngri flokka og knattspyrnuakademíu félagsins.
Jesper tekur við liði Víkings af Magnús Gylfasyni sem hætti með liðið á dögunum en Víkingar munu leika í fyrstu deild næsta sumar eftir að hafa fallið úr Landsbankadeildinni í haust.
Jesper tók við Leikni í ágúst síðastliðnum og náði góðum árangri með liðinu síðari hluta sumars. Liðið var í bullandi fallbaráttu í fyrstu deildinni þegar Jesper tók við en endaði síðan í sjötta sæti deildarinnar.
,,Ég hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni. Hjá Víkingi fann ég mikinn metnað til að gera hluti vel og ná árangri og því valdi ég Víkina sem starfsvettvang minn næstu árin," sagði Jesper.
Þessi 37 ára gamli þjálfari er með svokallaða UEFA PRO þjálfaragráðu sem aðeins einn Íslendingur er með í dag. Jesper er uppalinn hjá AGF í Aarhus en þar hefur hann starfað sem yfirþjálfari unglingastarfs og aðstoðarþjálfari aðalliðs AGF, bæði í úrvalsdeild og 1. deild.
Hann var aðalþjálfari FC Aarhus í 1. deild í Danmörku 27 ára og og þjálfaði lið Hjörring í dönsku 2. deildinni.
Sjá einnig:
Ítarlegt viðtal Fótbolta.net við Jesper (September 2007)