13.11.07 - 22:56
Magnús Már Einarsson
Árni Ingi Pjetursson í ÍA (Staðfest)

Árni Ingi (til hægri) í leik með Gróttu í sumar.

Mynd: Helgi Valberg

Árni Ingi Pjetursson skrifaði í kvöld undir eins árs samning við ÍA en hann hefur æft með liðinu að undanförnu.
,,Ég þekki Árna og hef þekkt hann lengi. Ég þjálfaði hann á sínum tíma þegar ég var hjá KR 1994 og 1995. Þó að það virðist vera ár og öld síðan það var þá er Árni ennþá innan við þrítugt og ég hlakka til að fá Árna í mínar raðir. Hann er lunkinn fótboltamaður og góður drengur," sagði Guðjón Þórðarson þjálfari ÍA við Fótbolta.net í kvöld.
Árni Ingi sem er 28 ára gamall lék með Gróttu síðari hluta sumars og skoraði fimm mörk í fimm leikjum með liðinu þegar að það tryggði sér sæti í annarri deild að ári.
Undanfarin ár hefur Árni verið á mála hjá Val en hann lék ekkert með liðinu í sumar áður en hann gekk til liðs við Gróttu.
Árni sem getur leikið allar stöður framarlega á vellinum kom alfarið hingað til lands í fyrra eftir að hafa verið í Bandaríkjunum í nokkur ár, fyrst í skóla og síðan við vinnu þar.
Hann lék alls 20 leiki með U-17 ára landsliðinu á sínum tíma og 26 leiki með U-19 ára landsliði Íslands en hann hefur leikið flesta U-19 ára landsleiki fyrir Íslands hönd.
Árni varð yngsti leikmaðurinn í efstu deild frá upphafi þegar hann kom inn á í leik með KR gegn Val í september 1994 og það met stóð þar til í 17.umferð Landsbankadeildarinnar í sumar að Sigurbergur Elísson leikmaður Keflvíkinga sló metið.