13.11.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Óttar Steinn og Jörgen í Hött (Staðfest)

Mynd: Höttur

Mynd: Höttur
Höttur og Grindavík hafa komist að samkomulagi um áframhaldandi lán Hattar á hinum tvítuga Óttari Steini Magnússyni út næsta keppnistímabil.
Óttar sem er uppalinn Hattari en hefur undanfarin ár verið á mála hjá Keflavík og nú síðast Grindavík kom í sumar við sögu í fjórum leikjum hjá Grindavík áður en hann var lánaður til Hattar um mitt tímabil.
Þá hefur Höttur einnig endurheimt Jörgen Svein Þorvarðarson frá Huginn Seyðisfirði. Jörgen skipti úr Hetti í Huginn á miðju síðastliðnu sumri og gerði þrjú mörk í átta leikjum fyrir Huginn þrátt fyrir að leika aðallega sem bakvörður. Jörgen hefur gert tveggja ára samning við Hött.
Þá hafa þeir Elvar Þór Ægisson, Anton Ástvaldsson, Bjarni Viðar Hólmarsson Bjartmar Þorri Hafliðason og Vilmar Freyr Sævarsson allir framlengt samninga sína við Hött til ársloka 2011.
Á myndinni til hliðar er Elvari Þór að skrifa undir samning, en Elvar var eini leikmaður Hattar á síðastliðnu tímabil sem lék alla 30 leiki félagsins í deildarbikar, bikar og 2.deild.