Fotbolti.net
13.11.09 - 18:03
Hafliði Breiðfjörð

Ásgrímur Helgi þjálfar kvennalið Aftureldingar (Staðfest)

Ásgrímur Helgi er lengst til vinstri í efri röð á þessari mynd af liði Álftanes sem hann þjálfaði áður. Hann er nú tekinn við kvennaliði Aftureldingar.

Ásgrímur Helgi er lengst til vinstri í efri röð á þessari mynd af liði Álftanes sem hann þjálfaði áður. Hann er nú tekinn við kvennaliði Aftureldingar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Kvennaboltinn
Ásgrímur Helgi Einarsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Aftureldingar en þetta var tilkynnt á fundi með leikmönnum liðsins nú rétt í þessu.
Ásgrímur Helgi tekur við starfinu af Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur sem hefur komist að samkomulagi um starfslok og er að fara að taka við KR.

ÁSgrímur Helgi stýrði liði Álftanes í þriðju deildinni í sumar en hann hafði tekið við liðinu af Dragi Pavlov á miðju sumri 2008 er hann var leystur frá störfum.

Undir stjórn Ásgríms náði Álftanes sínum besta árangri í 3. deild en liðið komst í 8 liða úrslit þar sem það féll út fyrir Ými í tveimur leikjum.

Aðstoðarmaður Ásgríms með lið Aftureldingar verður Bjarki Már Sverrisson sem hefur starfað mikið í yngri flokkum félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.