Fotbolti.net
13.11.26 - 12:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Túfa mættur heim í KA (Staðfest)

Þriggja ára samningur

Túfa mættur heim í KA (Staðfest)
Canon

Mynd: KA

Lengjudeildin
Srdjan Tufegdzic, Túfa, er mættur aftur til KA, hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við Akureyrarfélagið.

Túfa þekkir vel til hjá KA, kom til Íslands árið 2006 og spilaði með KA. Hann lék yfir 100 leiki fyrir félagið áður en hann lagði skóna á hilluna vegna meiðsla. Hann þjálfaði í yngri flokkum félagsins og árið 2012 varð hann aðstoðarþjálfari meistaraflokks.

Árið 2015 tók hann við sem aðalþjálfari og ári seinna kom Túfa KA upp í efstu deild eftir tólf ára fjarveru. Leiðir KA og Túfa skildu 2018.

Hann snýr nú aftur til Akureyrar eftir að hafa stýrt Grindavík, Öster, Skövde, Värnamo og verið bæði aðstoðar- og aðalþjálfari Vals.

KA féll úr Bestu deildinni í haust og markmiðið er fara beint upp í Bestu deildina aftur.
Úr frétt á heimasíðu KA
Túfa hefur lokið UEFA Pro þjálfaragráðunni en það er æðsta gráðan sem þjálfarar í knattspyrnuheiminum geta sótt sér.

Það eru gríðarlega jákvæðar fregnir að Túfa sé nú mættur aftur til KA en hann er gríðarlega metnaðarfullur og leggur sig ávallt allan fram við að ná markmiðum sínum.

Túfa er ákaflega vel liðinn innan félagsins og mótaði hann ansi marga iðkendur, bæði stráka og stelpur, innan félagsins á sínum tíma.

Við treystum honum svo sannarlega til þess að stýra KA aftur upp í deild þeirra bestu og hlökkum mikið til að vinna aftur með þessum frábæra karakter.


Túfa mættur heim í KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.