Fotbolti.net
13.12.06 - 16:00
Hörður Snævar Jónsson

Curbishley ráðinn stjóri West Ham (Staðfest)

Curbishley ráðinn stjóri West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alan Curbishley var nú síðdegis kynntur sem nýr knattspyrnustjóri West Ham United. Curbishley hætti með Charlton í lok seinasta tímabils og hefur verið orðaður við nokkrar stöður, til að mynda var hann orðaður sem næsti þjálfari enska landsliðsins.
Eggert Magnússon framkvæmdarstjóri West Ham var ánægður með að Curbishley hefði viljað taka við liðinu. ,,Ég er mjög ánægður með það að Alan vildi taka við liðinu," sagði Eggert.

,,Hann er þjálfari sem hefur sannað hæfni sína og elskar klúbbinn. Þetta er frábært dagur fyrir West Ham. Ég er viss um að núna höfum við rétta manninn til að leiða klúbbinn á hærra plan."

Mervyn Day mun verða aðstoðarmaður Curbishley hjá West Ham en þeir eru báðir fyrrum leikmenn félagsins. ,,Fyrir alla sem koma að West Ham bíð ég Mervyn og Alan vellkomna til starfa. Tveir fyrrum leikmenn sem eru komnir til baka þar sem þeir eiga heima.

Curbishley var einnig ánægður. ,,Ef þú hefðir sagt mér þegar ég var leikmaður liðsins 16 ára gamall að ég yrði stjóri liðsins, hefði ég hugsað ómögulegt," sagði Curbishley sem lék með liðinu frá 1975 til 1979.

,,Ég er mjög ánægður með að fá starfið. Mér hlakkar mikið til, þetta eru forrétitndi," sagði Curbishley en fyrsti leikur hans undir stjórn er á sunnudag gegn efsta liði deildarinnar, Manchester United.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.