Fotbolti.net
13.12.07 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Hlynur Hauksson til ÍA (Staðfest)

Hlynur handsamar samninginn ásamt Gísla Gíslasyni formanni rekstrarfélags meistara- og 2. flokks ÍA í gær.

Hlynur handsamar samninginn ásamt Gísla Gíslasyni formanni rekstrarfélags meistara- og 2. flokks ÍA í gær.

Canon

Mynd: Vefsíða ÍA

Skagamenn sömdu í gærkvöld við Hlyn Hauksson til tveggja ára en Hlynur sem er 19 ára gamall kemur til félagsins frá Breiðablik þar sem hann lék upp alla yngri flokkana og var á sínu fyrsta ári með meistaraflokki í sumar en hefur ekki enn leikið með liðinu.
Hlynur hefur æft með ÍA undanfarnar vikur og spilað með þeim æfingaleiki. Frammistaða hans þar var það góð að félagið ákvað að bjóða honum tveggja ára samning.

,,Ég er afskaplega ánægður að vera genginn til liðs við ÍA. Hér umgjörðin, hefðin og góður þjálfari og mikill metnaður," sagði Hlynur á vefsíðu ÍA í gær.

,,Ég var upphaflega vinstri bakvörður, en get leikið vinstra megin á miðjunni bæði í vörn og sókn. Ég var kominn í meistaraflokkshóp Breiðabliks síðastliðinn vetur, en varð fyrir því óhappi að fótbrotna í leik með 2. flokki í Faxaflóamótinu snemma í vor. En er nú alveg búinn að ná mér að fullu og klár í slaginn."

,,Síðan er þjálfarans að ákveða hvar hann vill að ég leiki. En aðalástæða þess að ég gekk til liðs við Skagamenn var sú að bæta mig sem knattspyrnumann og jafnframt að gera mitt besta fyrir liðið."

Heimild: Vefsíða ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.