13.12.07 - 13:08
Hafliði Breiðfjörð
Eggert Magnússon hættur hjá West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Nú hefur verið staðfest að Eggert Magnússon er hættur hjá West Ham United og hefur selt 5% hlut sinn í félaginu til Björgólfs Guðmundssonar sem nú á 100% hlut í félaginu. Björgólfur verður formaður félagsins en hann lagði fram 30,5 milljónir punda fyrir aukinn hlut í félaginu.
,,Eggert Magnússon hefur unnið frábært starf sem formaður, oft við erfiðar aðstæður, síðan fjárfestahópurinn keypti félagið fyrir 12 mánuðum síðan," sagði Björgólfur Guðmundsson. ,,Eggert ákvað að fara á vit nýrra ævintýra og huga að öðrum hagsmunum sínum. Við óskum honum alls hins besta til framtíðar og viljum þakka honum fyrir allt sem hann hefur gert fyrir West Ham."
Eggert var einnig í viðtali þar sem hann sagðist hafa lent í erfiðum áskorunum undanfarið ár en liðið var næstum fallið á síðustu leiktíð en bjargaði sér og í kjölfarið kom upp mál Carlos Tevez.
,,Ég hef algjörlega notið tímans sem ég var hér hjá West Ham. Frá því ég og Björgólfur Guðmundsson stofnuðum fjárfestahópinn til að bjóða í félagið hefur verið heiður að vera þáttakandi í þessu."
,,Núna þegar ég hef selt hlut minn í félaginu og þarf að einbeita mér meira að hagsmunum mínum erlendis, ég tel að þetta sé rétti tíminn til að stíga niður sem formaður. Undanfarnir 12 mánuðir hafa ekki verði án áskoranna en ég tel að við höfum orðið sterkari sem félag."

Heimild: Football 365