Fotbolti.net
14.01.09 - 22:28
Þórður Már Sigfússon

Jóhannes Þór Harðarson til Fløy (Staðfest)

Jóhannes Þór Harðarson til Fløy (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Jóhannes Þór Harðarson hefur skrifað undir eins árs samning við norska 2. deildarliðið Fløy. Norskir fjölmiðlar greindu frá þessu í dag.
Jóhannes sem var samningsbundinn Start til loka síðasta árs spilaði sem lánsmaður hjá Fløy í haust og stóð sig með prýði.

Forráðamenn félagsins lögðu því mikla áherslu á að fá hann til liðsins fyrir næsta keppnistímabil og hefur þeim nú orðið að ósk sinni.

,,Hann var ofarlega á óskalistanum og kemur til með að styrkja liðið mikið,” sagði Terje Marcussen, yfirmaður íþróttamála hjá Fløy, í samtali við Aftenbladet.

Sjálfur kveðst Jóhannes ánægður með að hafa skrifað undir hjá Fløy enda séu margir góðir hlutir að gerast hjá félaginu. Hann mun einnig sinna 50% vinnu meðfram knattspyrnuiðkuninni.

Marcussen útilokar ekki að fleiri íslenskir leikmann gangi til liðs við Fløy á komandi misserum en félagið hefur m.a. átt í viðræðum við Tryggva Guðmundsson, leikmann Íslandsmeistara FH.

,,Ég held að margir íslenskir leikmenn gætu hugsað sér að spila með Fløy,” sagði Marcussen.

Heimild: Aftenbladet

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.