Fotbolti.net
14.02.08 - 07:25
Magnús Már Einarsson

D'Alessandro til San Lorenzo á láni (Staðfest)

D'Alessandro til San Lorenzo á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

CA San Lorenzo í Argentínu hefur fengið miðjumanninn Andrés D'Alessandro á láni frá Real Zaragoza.
Fréttir herma einnig að San Lorenzo hafi borgað 3,5 milljónir evra og eigi nú 50% hluta í leikmanninum.

D'Alessandro sem er 26 ára gamall, hefur aðeins leikið fjóra leiki í La Liga á leiktíðinni en hann er á sínu öðru tímabili hjá Zaragoza. Áður var hann meðal annars á mála hjá Wolfsburg, Portsmouth og River Plate í heimalandinu.

Hann er nú farinn til San Lorenzo en Zaragoza getur kallað hann til baka úr láninu í sumar eða að einu ári liðnu.

Heimild: Heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.