14.02.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Marco van Basten tekur við Heerenveen (Staðfest)

Marco van Basten snýr aftur í boltann.

Mynd: Getty Images

Marco van Basten snýr aftur í boltann.

Mynd: Getty Images
Marco van Basten fyrrverandi þjálfari Ajax og hollenska landsliðsins hefur verið ráðinn nýr þjálfari hollenska liðsins Heerenveen og tekur við starfinu í sumar.
Rob Veenstra formaður félagsins sagði að Van Basten hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið en hann snýr þar með í þjálfun eftir þriggja ára fjarveru.
,,Þetta er metnaðarfullt félag sem vill ná lengra, en er líka raunsætt,\" sagði Van Basten.
Hann þjálfaði hollenska landsliðið frá 2004-2008 en hætti með liðið eftir að það féll út í fjórðungsúrslitum Evrópumóts landsliða árið 2008.
Hann tók svo við Ajax árið 2008 en stoppaði stutt við þar, hætti árið eftir og sagðist ekki telja sig nógu góðan í starfið.
Hann var goðsögn sem leikmaður sjálfur og lék á ferli sínum með Ajax og AC Milan. Ferlinum lauk svo vegna ökklameiðsla.
Hjá Heerenveen tekur hann við af Ron Jans sem rennur út af semningi í sumar og þegar var ákveðið að ekki yrði framlengt við hann.
Heerenveen er í þriðja sæti hollensku deildarinnar og getur að hluta þakkað það markahróknum Bas Dost sem hefur skorað 10 mörk í 21 leikjum.

Heimild: AP