Fotbolti.net
14.03.06 - 17:57
Hafliði Breiðfjörð

Árni Thor til ÍA (Staðfest)

Árni Thor

Árni Thor

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Varnarmaðurinn, Árni Thor Guðmundsson, hefur komist að samkomulagi við Knattspyrnufélag ÍA um að leika með félaginu næstu þrjú árin en frá þessu er greint á vefsíðu félagsins nú í dag.
Árni, sem hefur verið einn allra besti leikmaður HK undanfarin tvö ár, er fæddur árið 1980 og hefur á þessum tveim árum leikið 28 leiki með HK í næstefstu deild og skorað í þeim fjögur mörk.

Þar á undan lék hann með Leiftri/Dalvík í ein tvö ár. Árni sem er að upplagi HK-maður hefur eins og áður sagði verið einn allra besti leikmaður HK undanfarin tvö sumur og var m.a. valinn besti leikmaður liðsins á síðastliðnu keppnistímabili.

Árni þykir mjög sterkur varnarmaður og er ætlað að fylla það skarð sem þeir Gunnlaugur Jónsson og Reynir Leósson skildu eftir sig eftir að þeir félagar sögðu skilið við Skagamenn eftir síðasta keppnistímabil.

Að sögn Ólafs Þórðarsonar, þjálfara ÍA, er hér á ferðinni leikmaður sem getur vel sómað sig meðal þeirra bestu í efstu deild og ætti að vera mikill liðsstyrkur fyrir Skagamenn.

Sjá einnig:
Komnir og farnir í Landsbankadeild karla

Heimild: ÍA.is/KIA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.