14.05.07 - 15:19
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Davíð Örn lánaður frá Keflavík í Njarðvík (Staðfest)

Davíð er kominn yfir til Njarðvík

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Davíð er kominn yfir til Njarðvík

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Sóknarmaðurinn Davíð Örn Hallgrímsson hefur gengið til liðs við Njarðvík á láni frá nágrönnunum í Keflavík.
Davíð fór hins vegar á láni til Reyni frá Sandgerði í 2. deildinni þar sem hann skoraði eitt mark í tíu leikjum er þeir komust upp í 1. deildina. Hann hefur fengið leikheimild fyrir útileikinn gegn Leikni í dag og er í leikmannahópnum.
Davíð hefði líklega fengið fá tækifæri í byrjunarliðinu hjá Keflavík í sumar en hann var fyrir aftan Guðmund Steinarsson, Þórarinn Kristjánsson, Magnús Sverri Þorsteinsson, Einar Örn Einarsson og Stefán Örn Arnarsson í goggunarröðinni.
Davíð verður án efa liðsstyrkur við Njarðvíkurliðið sem misstu á dögunum Eyþór Guðnason til HK á ný.