Fotbolti.net
14.05.08 - 14:13
Magnús Már Einarsson

Jordao Diogo til KR (Staðfest)

Jordao í æfingaleik með KR gegn Njarðvík.

Jordao í æfingaleik með KR gegn Njarðvík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

KR-ingar hafa samið við portúgalska vinstri bakvörðinn Jordao Diogo og mun hann leika með liðinu í sumar.
Diogo kom hingað til lands í byrjun mánaðarins og hefur æft með KR og einnig leikið æfingaleik með liðinu.

Diogo kom upp í gegnum unglingastarf, Benfica en hefur undanfarið leikið á Englandi.

,,Hann er búinn að sýna það á æfingum hjá okkur og í vináttuleiknum gegn Njarðvík að hann hefur mikið fram að færa og er ágætis leikmaður. Við ákváðum að taka hann og styrkja hópinn okkar," sagði Rúnar Kristinsson yfirmaður knattspyrnumála hjá KR

Diogo er kominn með leikheimild hjá KR og því getur hann verið í leikmannahópi liðsins gegn Fjölni annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.