14.05.08 - 14:19
Hafliði Breiðfjörð
Joe Tillen í Fram (Staðfest)

Sam Tillen bróðir hins nýja leikmanns Fram, Joe Tillen.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar fengu liðsstyrk í dag þegar enski kantmaðurinn Joe Tillen gekk til liðs við félagið en hann er bróðir bakvarðarins Sam Tillen. Joe Tillen sem er 21 árs var frá 16-20 ára aldurs í knattspyrnuakademíunni hjá Chelsea en hann hefur einnig verið á mála hjá Milton Keynes Dons á Englandi.
Hann fær leikheimild með Fram á morgun og gæti því verið í leikmannahópnum sem mætir HK í Landsbankadeildinni annað kvöld.
,,Joe kom hérna í vetur og við kíktum á hann og leyst mjög vel á hann," sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fram við Fótbolta.net í dag. ,,Hann er bróðir Sam Tillen og í gegnum hann hafði hann áhuga á að koma hingað og sýna sig og vera með okkur og prufa í sumar. Við ákváðum að kýla bara á það," bætti hann við.
Framarar eru með þrjá leikmenn á meiðslalista en þeir eru allir kantleikmenn eins og Joe Tillen. Þeir Jón Þorgrímur Stefánsson, Henrik Eggerts og Grímur Björn Grímsson, Þorvaldur segir það ekki ástæðu þess að klárað var að semja við Joe Tillen núna.
,,Nei það var ekkert sérstaklega út af því. Þetta voru bara hlutir sem við þurftum að skoða með honum því hann er í skóla og kemur hér í sumarfríinu til að sjá hvernig gengur. Hann verður hérna allt tímabilið en það fer líka allt hvernig gengur hjá okkur."