Fotbolti.net
14.05.08 - 15:52
Hörður Snævar Jónsson

Þórður Birgisson á láni í KS/Leiftur frá HK (Staðfest)

Þórður í leik með HK á síðustu leiktíð.

Þórður í leik með HK á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Þórður Birgisson leikmaður HK hefur verið lánaður í KS/Leiftur sem í sumar mun spila í 1. deildinni í sumar. Þetta staðfesti Brynjar Harðarson framkvæmdarstjóri KS/Leiftur í samtali við Fótbolta.net
Þórður skrifaði í janúar undir nýjan tveggja ára samning við HK sem hélt sæti sínu í deildinni á síðasta ári.

Þórður er ekki ókunnugur því að spila með KS/Leiftri en hann skoraði til að mynda 13 mörk í 15 leikjum sumarið 2004 þegar liðið lék í 2. deildinni.

Þórður er 24 ára gamall og kom til HK frá KS í október 2005. Hann fótbrotnaði í mars árið eftir og missti því af stórum hluta tímabilsins það ár er HK lék í 1. deildinni.

Hann kom svo inn í liðið á fullum krafti síðasta sumar en þá lék HK í fyrsta sinn í Landsbankadeild. Hann lék 17 leiki með liðinu í Landsbankadeildinni í fyrrasumar og skoraði í þeim tvö mörk.

Þórður er þriðji leikmaðurinn sem KS/Leiftur fær fyrir komandi átök en þeir Oliver Jaeger og Róbert Örn Óskarsson hafa nýverið gengið í raðir félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.