14.05.11 - 07:05
Hafliði Breiðfjörð
Frans Elvarsson kominn aftur í Njarðvík (Staðfest)

Frans í leik með Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frans í leik með Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frans Elvarsson er genginn í raðir Njarðvíkur að nýju frá Keflavík en hann kemur á láni frá Keflavík sem hafði fengið hann frá Njarðvík í desember.
Frans sem getur spilað allar stöðurnar á miðjunni og sem framherji hafði þá skrifað undir þriggja ára samning við Keflavík.
Frans Elvarsson er 20 ára gamall og hóf meistaraflokksferill hjá Sindra árið 2005 þar sem hann spilaði 18 leiki í deild og bikar á tveimur tímabilum.
Hann fór til Njarðvíkur fyrir tímabilið 2007 og hefur leikið 84 leiki og skorað fjögur mörk. Hann spilaði 23 leiki með liðinu í deild og bikar í sumar.
Frans á að baki 11 leiki með U19 og U17 ára landsliðum Íslands.
Þar með hafa allir leikmennirnir sem komu til Keflavíkur frá Njarðvík í vetur yfirgefið félagið. Kristinn Björnsson fór einnig í Njarðvík að nýju og Ísak Örn Þórðarson fór í Hauka.

Heimild: Vefur Njarðvíkur