Fotbolti.net
14.05.20 - 23:00
Ívan Guðjón Baldursson

„99% líkur" að Serie A fari af stað 13. júní

Malago telur nánast öruggt að stjórnvöld samþykki tillögu              Serie A.

Malago telur nánast öruggt að stjórnvöld samþykki tillögu Serie A.

Canon

Mynd: Getty Images

Giovanni Malago, forseti ítölsku Ólympíunefndarinnar, telur 99% líkur að efsta deild í knattspyrnu, Serie A, fari aftur af stað 13. júní.
Félög í Serie A samþykktu 13. júní sem raunhæfa dagsetningu til að byrja að spila aftur og bíða nú eftir samþykki frá stjórnvöldum. Ítalska deildin myndi þá fara aftur af stað á sama tíma og sú enska, en Ítalía og England eru þau lönd sem hafa lent hvað verst í kórónuveirunni.

„Það eru 99% líkur að stjórnvöld samþykki tillögu Serie A um að ræsa tímabilið að nýju í júní," sagði Malago.

„Ef við eigum að ræða líkurnar á að tímabilið verði klárað þá er það allt annað mál. Við þyrftum að geta séð inn í framtíðina til að svara því. Það er mögulegt að tímabilið verði ekki klárað, markmiðið þessa stundina er að koma því aftur í gang."

Juventus er á toppi ítölsku deildarinnar, einu stigi á undan Lazio, þegar tólf umferðir eru eftir.

Sjá einnig:
Serie A af stað 13. júní ef stjórnvöld gefa grænt ljós

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Lecce000
1Juventus2+56
2Bologna000
2Inter2+56
3Frosinone000
3Bologna2+14
4Genoa000
4Milan1+33
5Napoli1+23
5Napoli000
6Udinese000
6Chievo1+13
7Monza000
7Sampdoria1+13
8Roma2-13
8Sassuolo000
9Torino101
9Venezia000
10Lazio101
10Roma000
11Inter000
11Sassuolo101
12Juventus000
12Spal101
13Fiorentina000
13Genoa2-21
14Udinese1-10
14Milan000
15Atalanta1-10
15Atalanta000
16Benevento2-20
16Lazio000
17Cagliari000
17Verona1-20
18Torino000
18Cagliari1-30
18Cremonese38-2534
19Crotone1-30
19Parma000
19Verona38-3621
20Pisa38-4518
20Fiorentina1-30
20Como000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.