Fotbolti.net
14.05.23 - 20:53
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Barcelona meistari í 27. sinn (Staðfest)

Barcelona er meistari

Barcelona er meistari

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona er meistari í 27. sinn eftir að hafa unnið nágranna sína í Espanyol, 4-2, í 34. umferð La Lga á Spáni í dag.
Börsungar byrjuðu leikinn frábærlega. Robert Lewandowski skoraði á elleftu mínútu eftir sendingu frá Alejandro Balde áður en vinstri bakvörðurinn gerði annað mark liðsins níu mínútum síðar.

Lewandowski gerði annað mark sitt í leiknum undir lok fyrri hálfleiksins og gerði franski varnarmaðurinn Jules Kounde fjórða marki í upphafi þess síðari.

Javi Puado minnkaði muninn fyrir Espanyol þegar tuttugu mínútur voru eftir og þá gerði Joselu annað sárabótamark undir lok leiksins en lengra komust þeir ekki og Börsungar því meistarar í 27. sinn og það þegar fjórar umferðir eru eftir.

Barcelona er með 85 stig í efsta sætinu, fjórtán stigum á undan Real Madrid. Atlético Madríd tapaði fyrir Elche, 1-0, og er því í þriðja sætinu með 69 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Celta 1 - 2 Valencia
0-1 Justin Kluivert ('8 )
1-1 Haris Seferovic ('60 )
1-2 Alberto Mari ('88 )
Rautt spjald: Gabriel Paulista, Valencia ('90)

Elche 1 - 0 Atletico Madrid
1-0 Fidel ('41 )

Espanyol 2 - 4 Barcelona
0-1 Robert Lewandowski ('11 )
0-2 Alejandro Balde ('20 )
0-3 Robert Lewandowski ('40 )
0-4 Jules Kounde ('53 )
1-4 Javi Puado ('73 )
2-4 Joselu ('90 )

Valladolid 0 - 3 Sevilla
0-1 Rafa Mir ('50 )
0-2 Papu Gomez ('78 )
0-3 Jesus Corona ('90 )

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid12+1328
4Betis12+526
5Real Sociedad12+122
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Villarreal12+215
9Deportivo12+115
10Racing Santander12-1314
11Celta12013
12Alaves12-213
13Espanyol12-112
14Vallecano11-612
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Levante12-511
18Elche12-610
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.