14.06.06 - 11:41
Guðmundur Dagur Ólafsson
Lescott til Everton (Staðfest)

Lescott er hér hægra meginn á myndinni

Mynd: Getty Images

Lescott er hér hægra meginn á myndinni

Mynd: Getty Images
Everton hafa gengið frá kaupum á varnarmanninum Joleon Lescott frá Wolves. Þetta er staðfest á heimsíðu Everton en kaupverðið fyrir hinn 23 ára gamla Lescott er óuppgefið.
Lescott, sem er talinn kosta í kringum 5 milljónir punda, skrifaði undir 4 ára samning við félagið og var David Moyes viðstaddur. Moyes hafði fyrr í mánuðinum gengið frá kaupunum á framherjanum Andy Johnson frá Crystal Palace á 8,6 milljónir punda.
Lescott spilaði alla leiki Wolves á síðasta tímabili og var valinn leikmaður ársins af stuðningsmönnum félagsins.
En þessi fyrrum U21 árs landsliðsmaður Englendinga spilaði ekki í Úrvalsdeildinni með Wolves árið 2003 vegna meiðsla. Lescott, sem er alinn up hjá Úlfunum, spilaði yfir 200 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 13 mörk.