14.07.06 - 18:11
Hafliði Breiðfjörð
André Schei Lindbæk til FH (Staðfest)

FHingar fá góðan liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

FHingar fá góðan liðsstyrk.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
FH-ingar sömdu nú rétt í þessu við norska framherjann André Schei Lindbæk um að leika með liðinu út þessa leiktíð og næstu. Lindbæk kom hingað til lands á miðvikudaginn í síðustu viku og hefur æft með FH á reynslu síðan þá. Hann fór í læknisskoðun hjá FH klukkan 17:00 í dag og að henni lokinni samdi hann við félagið til tveggja ára.
Pétur Stephensen framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar FH staðfesti þetta vð Fótbolta.net nú í kvöld en hann vonast til að leikmaðurinn verði kominn með leikheimild fyrir leik liðsins gegn Val í Landsbankadeildinni á sunnudag.
Hann verður hinsvegar ekki löglegur á miðvikudaginn þegar FH mætir eistneska liðinu TVMK Tallin í síðari leik liðanna í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu á miðvikudag en FH vann fyrri leikinn 3-2 og á því góða möguleika á að komast áfram. Fari svo að FH komist áfram í aðra umferð og mæti Legia frá Póllandi þá verður Lindbæk löglegur í þeim leikjum.
André Schei Lindbæk sem er 29 ára gamall framherji var síðast á mála hjá Landskrona í Svíþjóð þar sem hann lék með Auðni Helgasyni varnarmanni FH sem leikur ekkert með liðinu í sumar vegna krossbandameiðsla.
Hann hefur komið víða við á ferlinum og meðal annars leikið með Numancia og Las Palmas á Spáni sem og norsku liðunum Kongsvinger IL, Skeid, Drøbak Frogn, Molde og Viking.