Fotbolti.net
14.07.06 - 15:55
Andri Fannar Stefánsson

Meite til Bolton (Staðfest)

Meite í baráttunni við David Villa í vináttulandsleik gegn Spáni í mars sl.

Meite í baráttunni við David Villa í vináttulandsleik gegn Spáni í mars sl.

Canon

Mynd: Getty Images

Hinn 25 ára varnarmaður frá Fílabeinsströndinni, Abdoulaye Meite hefur gengið til liðs við Bolton frá Marseille en kaupverðið er ekki gefið upp. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning.
Meite tók þátt í tveimur leikjum fyrir land sitt á nýafstöðnu HM en hann á nú einungis eftir að standast læknisskoðun hjá Bolton.

„Við höfum fylgst með Meite lengi, hann hefur öll gæðin sem þú býst við frá útlendingi. Hann er ungur og mun aðlagast enska boltanum vel,“ sagði Sam Allardyce stjóri Bolton við vefsíðu Bolton í dag.

Meite spilaði yfir 100 leiki fyrir Marseille á fimm tímabilum en hann var ekki í náðinni á síðasta tímabili hjá Jean Fernandez þjálfara Marseille þá.

Allardyce hefur þegar fengið miðjumanninn Idan Tal og vonast til að bæta enn við leikmannahóp sinn áður en félagaskiptaglugganum lokar.

„Við vinnum hörðum höndum að því að fá fleiri leikmenn til liðsins, ég er öruggur um að við fáum nokkra áður en glugganum lokar," sagði Sam Allardyce svo að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.